Innskráning í Karellen

BRÚIN

Barn - Ráðgjöf - Úrræði

Hafnarfjarðarbær hefur frá og með haustinu 2018 farið af stað með nýja nálgun til að efla stuðning og þjónustu við börn í leik- og grunnskólum bæjarins. Markmiðið er að auka lífsgæði barna, unglinga og fjölskyldna þeirra.

Lögð er áhersla á að veita aukna þjónustu á fyrri stigum. Samvinna fagfólks hefur verið efld á milli fjölskylduþjónustu og fræðslu- og frístundaþjónustu Hafnarfjarðar.

Aukin þjónusta fer fram í gegnum lausnateymi leik- og grunnskólanna. Í lausnateymum sitja fagaðilar á vegum skólans, ásamt ráðgjöfum frá fjölskylduþjónustu, sálfræðingum og/eða sérkennslufulltrúa frá fræðslu- og frístundaþjónustu. Hlutverk lausnateyma er að kortleggja stöðu barns og leita sameiginlegra lausna, barni og fjölskyldu þess til stuðnings. Í lausnateymi er nám, hegðun, þroski og/eða líðan barns rædd með samþykki foreldra og viðunandi úrræði virkjuð til að bregðast fyrr við erfiðleikum eða aðstæðum barnsins.

ferill leikskóla.pdf

brúin kynning .pdf
© 2016 - 2023 Karellen