Smárabarð 1
Leikskólinn Smáralundur
Leikskólinn Smáralundur er þriggja deilda leikskóli með fimmtíu og níu nemendum.
Einkunnarorð skólans eru: Hreyfing, Hollusta og Vellíðan
Hreyfing: Við leggjum áherslu á daglega hreyfingu og markvisst hreyfiuppeldi. Með því er lagður grunnur að líkamlegri, andlegri og félagslegri velferð til lífstíðar. Við eflum hreyfifærni og sköpum öruggt umhverfi sem hvetur alla til hreyfingar.
Hollusta: Stuðlum að heilsusamlegu fæðuvali með, fræðslu og góðu framboði á fjölbreyttum mat.
Vellíðan birtist í að þau hafa trú á sjálfum sér og eigin getu og hafa jákvæða sjálfsvitund. Börn og foreldrar komi glöð í skólann og fari ánægð heim í lok dags